Bloggfærslur mánaðarins, október 2008
Knattspyrnufélag Reyðarfjarðar hefur ákveðið að ráða til liðsins nýjann þjálfara. Eftir slakann árangur síðustu 2ja ára þá var Konráð Þór Vilhjálmsson látinn taka pokann sinn. Í hans stað hefur verið ráðinn Þórður Vilberg Guðmundsson, hann er reynslu mikill úr yngriflokka starfinu en er að koma nýr inn í þjálfun meistaraflokks. Þórður er 22. ára gamall og er fyrrum super striker í liðinu, en hefur nú lagt skóna á hilluna og ákvað að taka að sér þjálfun félagsins eftir miklar og strangar viðræður. Önnur nöfn hafa komið upp á borðið hjá félaginu og hefur meðal annars annar ungur þjálfari sótt um starfið. Eftir langa og stranga umhugsun þá var Þórður fyrir valinu. Vonandi að hann komi til með að ná betri árangri en fyrirveri hans í þessu starfi. Við óskum Þórði alls hins besta í nýja starfinu og vonum að hann eigi eftir að ná langt.
Óli Formaður
Íþróttir | 30.10.2008 | 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Vegna skakkafalla í íslenska efnahagskerfinu þá gekk sala KR á Páli Jóhannessyni til dönsku snillinganna í Álaborg til baka. Danir neyta að leggja peninga inn á íslenska banka þannig að ekkert verður að sölunni. Hins vegar er kominn nýr leikmaður til liðsins og á sá leikmaður sennilega eftir að velta Kjartani Braga úr sessi sem söngvari liðsins. Hér er linkur með vídjói sem við hjá KR fengum sent af þessum nýja leikmanni og ofur skemmtikrafti http://www.youtube.com/watch?v=-sy3hLO6l94
Það er skemmst frá því að segja að starf félagsins liggur að mestu leyti niðri eins og staðan er núna. Utan þess sem við stjórnar menn höfum verið að ræða framtíð liðsins. Það sem helst er á dagskrá eru hugsanleg leikmannakaup fyrir næsta tímabil og ber þar helst að nefna hinn geysi sterka sóknarmann Hanlouga Gloungley frá Nígerakva. En þessi maður er tallinn eitt helsta efni landsins, einungis 47 ára gamall. Útsendari okkar í Danmörku, Páll Jóhannesson er að skoða úrval danskra leikmanna fyrir liðið og er von á skýrslu frá honum á næstu dögum eða vikum.
Aðalfundur félagsins verður haldinn þegar stjórnarmenn sjá fram á það að vera flest allir ef ekki allir á sama stað á sama tíma. En það verðu auglýst síðar.
Ég man ekki eftir neinu öðru í augnablikinu þannig að ég læt þetta gott heita í bili.
Skora á Kjartzenegger að fara að tjá sig hérna aftur, hann hefur hvort eð er ekkert annað að gera þarna í Reykjavíkinni en að blogga.........
Formaðurinn kveður að sinni........
Íþróttir | 27.10.2008 | 21:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
http://www.austurglugginn.is/index.php/20081024821/Landid/Ymislegt/Malarvinnslan_segir_upp_30_starfsmonnum
Eða sponsar seðlabankinn bara dæmið?
Íþróttir | 24.10.2008 | 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Tenglar
Boltinn
- Gamla síðan !!!!
- KFF Fjabbarnir
- Leiknir F Leiknir International
- Utandeildin Malarvinnsludollan!!!
- Dýnamo Höfn Sovéski björninn
- 06.Apríl Seyðfirðingarnir
- http://
Um liðið
- Stjórnin Stjórn Félagsins
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 685
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar