Áður en lengra er haldið þá stefnum við að því að taka æfingaleik í rvk laugardaginn 28.mars og viljum endilega fá sem flesta austfirðinga í bænum til að spila með okkur. Áhugasamir hafi samband við Dodda (8665668) Kjartan Braga(8470711) eða Óla(8656499)
En nú It´s the moment you´ve all been waiting for
- Nafn? Ólafur Kristinn Kristínarson...
- Kennitala ? Henni var stolið af nígeríusvindlurum
- Gælunöfn eða aðrar uppnefningar? Stóri-Ó.. Ó-mennið
- Uppáhalds knattspyrnufélag í Englandi (Ath. Að minnsta kosti 3 leikmenn verða að vera enski svo liðið teljist með) ? hmm erfitt val, hugsa að það sé bara Bury eða Rushden & Diamonds
- Hefur þú séð græna álfa? Ég geri það daglega..
- Ef þú værir forseti USA hvað væri það fyrsta sem þú myndir gera? Banna mótmælendur og annan óþverralýð
- Er guð almáttugur? RANGT...
- Trúir þú á guð? nei
- Hvenær hafðiru síðast mök? Laugardaginn
- Hver er fallegastur í KR(Rauðhært fólk hefur ekki framboðsrétt)? Mér hefur alltaf þótt þjálfarinn gríðarmyndarlegur og reyndar dómarastjórinn líka.
- Ef þú fengir að vita í dag að enginn væri morgundagurinn hvað myndiru athafast? Trekantur með K-dawg og einhverri gullfallegri mær ;)
- Af hverju verður fólk rauðhært? Vegna þess að öðruvísi verður það ekki fallegt... Kjartan,, þú ert rauðhærður, þessvegna ertu svona fallegur ;)
- Hverjir verða Englandsmeistarar í vor og hverjir verða Evrópumeistarar(Í knattspyrnu karla)? Man Ure... því miður en Barcelona verða evrópumeistarar
- Ertu tilbúinn að setja pening á það? Já ég hugsa það bara
- Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í? Það er góð spurning maður... það er svo margt ;)
- Nike eða Adidas? Diadora klárlega
- Uppáhalds lag? Shame með System of a down og Wu tang klan
- Ef þú fengir sénsinn á því að vera gagnkynhneigður í einn dag hvaða stelpu/konu myndiru vilja vera með? Telst Kjartan með? Annars held ég að maður myndi refsa Ragnhildi Steinunni...
- Gunnar í Krossinum eða Ingvar Rafn? Klárlega Gunnar í krossinum...
- Ertu góður í einhverju, ef svo er þá hverju? Hef almenna yfirburði í öllu og var einmitt ofarlega í kjöri á austfirðingi ársins sökum þess.. þannig að ég er bara góður í öllu...
- Uppáhalds svarti íþróttamaður? O. J. Simpson klárlega
- Uppáhalds hvíti íþróttamaður? Ég myndi segja að það væri Josef Fritzl, hann var mikill boccia maður á yngri árum, einnig var hann liðtækur í Krullu
- Cristiano Ronaldo eða Alexander Freyr Sigurðsson? (Rökstuðningur)? Lexi klárlega, hann er með miklu betri dýfur og miklu betri greiðslu :D
- Ef þú heyrir orðin PÁLL JÓHANNESSON hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug? Kynþokki, Smörrebröd og Shemale (veit ekki af hverju en það bara kemur strax upp í hausinn á mér )
- Þegar þér bregður hvaða hljóð gefuru þá frá þér? Það heyrist varla í mér,, hjartað stoppar nefninlega
- Ef þú þyrftir að henda Atla eða Lexa út úr flugvél hver fengi að fjúka? Lexa... Atli er dómarastjóri og sér um að við vinnum leiki á dómaraskandal
- Kjartan Bragi eða Ævar? Kjartan Bragi, sökum kynþokkans
- Hvað var lægsta einkunn sem þú fékkst í menntaskóla og í hvaða grein var það? Hahahha 4 í dönsku, 2var í röð
- Ef svo ólíklega vildi til að þú myndir neyta áfengis hvaða áfengi myndi það vera? Tuborg Grön, Víking gull eða Kaptein morgan
- 1 ósk? Trekantur með K-dawg og Ragnhildi Steinunni...
- Snart til hægri eða snart til vinstri? Allavega alls ekki til vinstri, þar eru bara rauðskalli brennivínsson og kolbrún klikk
- smíða eða smítta? Bíta eða bítta? Góð spurning held að það sé bara smítta og bíta ;)
- Steven Gerrard eða Roy Keane? Er þetta eitthvað ofan á brauð??
- Hvort myndurðu frekar spila með Hetti eða kjósa Vinstri Græna í Norðaustur kjördæmi? Hoppa fyrir bíl...
Íþróttir | 16.2.2009 | 00:12 (breytt kl. 00:12) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
- Nafn ? Kjartan Bragi Valgeirsson
- Kennitala ? Var afturkölluð af Hagstofunni
- Uppáhalds knattspyrnufélag(Tekið er fram að Sheff. Wed. er ekki knattspyrnufélag heldur klappstýrusamtök)? Miðað við forsendurnar í þessari spurningu sé mér ekki fært að svara henni en ef lesendur vilja kynna þér betur munin á knattspyrnuliðum og klappstýrusamtökum mæli ég með stórmyndinni Bring It On
- Hefur þú séð græna álfa? Veit það ekki, sá einu sini saving iceland liða á vappi þeir kannski flokkast sem slíkir
- Ef þú værir forseti USA hvað væri það fyrsta sem þú myndir gera? Að sjálfsöðgu myndi ég byrja á að fá mér nýtt teppi á skrifstofuna mína í hvíta húsinu eins og gömul hefð er.
- Er guð almáttugur? Nei, ef hann væri almáttugur gæti hann skapað stein svo þungan að enginn kraftur gæti loftað honum (og þar með hann sjálfur). Nú einnig ef hann gæti ekki skapað stein svo þungan að hann gæti ekki lyft honum væri hann augljóslega ekki almáttugur. Vert er að taka fram að ég sendi þessa spurningu á uppáhalds sjónvarpsmann minn, Gunnar Þorsteinsson gjarnan kenndan við kross en mér hefur ekkert svar borist.
- Trúir þú á guð? Get ekki sagt það enda mjög vísindalega sinnaður, hins vegar bíð ég spenntur eftir að Gunnar í Krossinum frelsi mig
- Hvenar sástu Ólaf Kristinn síðast stunda mök? Það var í apríl á síðasta ári þegar söngvakeppni framhaldskólanna var á akureyri en ég, ævar og óli gistum saman í bústað. Svo þegar ég drambast uppí bústað um morgunin sé hvar óli liggur með þetta líka sólheimaglott, spúsu upp á arminn og notaðan smokk í gluggakistunni (já ég tékkaði hann var notaður), fyrst sem ér spurði að var; var hún þröng?
- Hver er fallegastur í KR(Rauðhært fólk hefur ekki framboðsrétt)? Konni og Atli Már hafa löngum tryllt dömurnar
- Ef þú fengir að vita í dag að enginn væri morgundagurinn hvað myndiru athafast? Gera allt sem ég gæti til að fara í svokallaðan trekant með þér Palli og danskri spúsu og Óla og annari spúsu líkt og þið hafið margoft boðið mér báðir.
- Af hverju verður fólk rauðhært? Það stafar af því að viðkomandi hefur erft gen fyrir rauðu hári frá báðum foreldrum. Vert er að taka fram að fólk verður einnig Kastaníubrúnhært af sömu ástæðum. Annar möguleiki fyrir fólk sem vill verða rauðhært er að lita á sér hárið með þar til gerðum rauðum hárlit en deila má um það hvort fólk sé þá alvöru rauðhausar.
- Hverjir verða Englandsmeistarar í vor og hverjir verða Evrópumeistarar(Í knattspyrnu karla)? Chelskí og að sjálfsögðu FC Bayern
- Ertu tilbúinn að setja pening á það? Já ég myndi gjarnan vilja leggja undir 100 hollensk gyllini
- Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í? Einu sinni var ég að versla í krónunni og fékk höfnun á kortið mitt, það var rosalegt
- Nike eða Adidas? Hvurs lags spurning er þetta, Puma að sjálfsögðu
- Uppáhalds lag? Engan Trekant hér með Leoncie
- Ef þú fengir sénsinn á því að vera gagnkynhneigður í einn dag hvaða stelpu/konu myndiru vilja vera með? Ragnhildi Steinunni af augljósum ástæðum
- Gunnar í Krossinum eða Ingvar Rafn? Góð spurning, ef þetta er um það hvorn ég myndi vilja hafa á móti mér í liði í fótbolta þá væri það Ingvar Rafn því það er svo létt að vinna hann
- Ertu góður í einhverju, ef svo er þá hverju? Fagmaður í öllu sem ég tek mér fyrir hendur, hef lengið vakið athygli fyrir sönghæfileika og fyrir að vera yfirburða tæknitröll á knattspyrnuvellinum
- Hvaða lag söngstu seinast sem var tekið upp á gsm síma? Það var Lofsöngur eftir Mattías Jochumson við ljóð Sveinbjörns Sveinbjörnssonar, áður hafði ég gert lagið Baby One More Time með hefðarfrúnni Britney Spears ódauðlegt
- Uppáhalds svarti íþróttamaður? Hinn mikli meistari Usain Bolt hversu geðveikt var hlaupið hans á ólympíuleikunum?
- Uppáhalds hvíti íþróttamaður? Sá hvítasti er alla vega Ólafur Kr. Kristínarson, annars var það alltaf Jürgen Klinsmann
- Edwin Van Der Sar eða Ólafur Kristinn Kristínarson(Rökstuðningur)? Ólafur Kristinn Kristínarson, hann er fallegri, liðugri og svo kom hann með nýja vídd í heim markmennskunnar í fyrra þegar hann uppgvötaði að markmenn ættu að fá boltann Í sig
- Ef þú heyrir orðið FAXE KONDI hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug? Var það ekki úrvalsdeildin í danmörku fyrir nokkrum árum
- Þegar þér bregður hvaða hljóð gefuru þá frá þér? Það er nokkurskonar ómuð sérhljóðun af styrknum svona 35 dB
- Ef þú þyrftir að henda Atla eða Lexa út úr flugvél hver fengi að fjúka? Má ég ekki velja báða?
- Finnst þér svínakótilettur með bernasie sósu og kartöflum gott? Ég myndi telja það í meðallagi gott
- Hvað var lægsta einkunn sem þú fékkst í menntaskóla og í hvaða grein var það? 5 í skólasókn en í alvöru greinum var það 6 í stæ 603en það var eina einkunnin mín undir 7
- Ef svo ólíklega vildi til að þú myndir neita áfengis hvaða áfengi myndi það vera? Hin heilaga blanda Gin&Tónik klikkar sjaldan sem og Stellan góða
- 1 ósk? Að geta breytt 49,9% af mínum gáfum í fótboltahæfileika
- Snart til hægri eða snart til vinstri? Snart til hægri
- Smíða eða smítta? Bíta eða bítta? Allir góðir menn segja smítta, annað er rugl og þar af leiðandi líka bítta
- Steven Gerrard eða Roy Keane? Hver er munurinn á kúk og skít?
Tekið er fram að allar spurningar eru frumsamdar og er ætlun þeirra ekki að móðga rauðhærða eða að gefa út frá sér rasistastrauma.
Umsjónarmaður hinnar hliðarinnar var Páll Jóhannesson lífskúnster
Íþróttir | 9.2.2009 | 23:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Knattspyrnufélag Reyðarfjarðar á Wikipediu:
http://is.wikipedia.org/wiki/Knattspyrnuf%C3%A9lag_Rey%C3%B0arfjar%C3%B0ar
Lifið Heil!
Íþróttir | 18.1.2009 | 17:04 (breytt kl. 18:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fullt nafn: Eiríkur Ingi Jónsson
Gælunafn: Eiki eða Kríkur
Aldur: á seytjánda ári
Giftur/sambúð: einhleypur
Börn: eru sæt
Hvað eldaðir þú síðast? Ógeðslegan nacho rétt
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? peppi
Hvernig gemsa áttu? nokia 6300i eða eitthvað
Uppáhaldssjónvarpsefni? friends
Hvaða tónlist hlustar þú á? góða
Uppáhaldsútvarpsstöð? Bylgjan...!!!
|
Uppáhaldsdrykkur? kók
Uppáhaldsvefsíða ? facebook
Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?)? nei
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Toga í nipplurnar þeirra
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Öllum nema KR!
Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Atli Már
Erfiðasti andstæðingur? Atli Már
Besti samherjinn? Atli Már
Sætasti sigurinn? Veit ekki
|
Mestu vonbrigði? Að tapa fyrir einhverju liði þegar ég skoraði..
Uppáhaldsknattspyrnumaður? Torres
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Rúnar Júl
Efnilegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi? Atli Már
Grófasti leikmaður deildarinnar? Atli Már
Besti íþróttafréttamaðurinn? veitiki
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Ég
Hefurðu skorað sjálfsmark? Nei
Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Nei
Hvenar byrjaðir þú að æfa fótbolta? 8 eða eitthvað
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Rangstæðureglunni
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Eirík og sólskinsbandið
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Örlygur Hnefill
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Rúmið hans Atla Márs
|
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Fimm mín
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Atli már
Hver er uppáhalds platan þín? Svona er sumarið 2005
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? Held að ég hafi bara aldrei gert það
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Bara einhverjum adidas skóm
Í hverju varstu lélegastur í skóla? landafræði
Hvað langar þér að taka þér fyrir hendur þegar að fótboltaferilinn er búinn? Byko höfðingi
Eithvað að lokum? neinei
Íþróttir | 13.1.2009 | 23:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Ég ætlaði að koma með rosalegt blogg en sá þá að Óli hafði tekið þessa meistaralegu hina hlið á A-manninum en ekki birt mörðurinn svo ég tók mér það bessa leyfi að gera það hið snarasta
Annars er það helst í fréttum að samningar hafa náðst við Leikni Fásk um æfingaleik í Jólafríinu, sennilega 30.des. Þeir ætluðu ekki að þora fyrst en eftir að Óli hótaði öllu illu ef þeir myndu ekki taka leikinn sá þeir ekki annan leik í stöðunni. Bara takið daginn frá
En þá að hinni hliðinni:
Fullt nafn: Atli Már Sigmarsson
Gælunafn: A-maðurinn.
Aldur: 21
Giftur/sambúð: Single
Börn: Engin
Hvað eldaðir þú síðast? Kjúkling í huganum, annað man ég ekki
Hvað vilt þú fá á pizzuna þína? Skinku
Hvernig gemsa áttu? Sony Ericsson W310 eða eittthvað álíka
Uppáhaldssjónvarpsefni? Klovn baby :D
Hvaða tónlist hlustar þú á? Hlusta alltof lítið nema á útvarp, það er þó helst Queen og TOTO
Uppáhaldsútvarpsstöð? Rás 2, FM957 um helgar
Uppáhaldsdrykkur? Always Coca Cola
Uppáhaldsvefsíða ? Hvernig dettur þér þessi spurning í hug Ólafur...
Ertu hjátrúarfullur fyrir leiki (ef já, hvernig þá?)? Man ekki eftir neinu, en gæti vel trúað því.
Hvernig er best að pirra andstæðinginn? Hrinda honum stöðugt inní teig í hornspyrnu.
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með? Hetti
Hvert var átrúnaðargoð þitt á yngri árum? Hmm...ætli það hafi ekki verið Alan Shearer og Róbert Haraldsson
Erfiðasti andstæðingur? Marinó Óli er helvíti að eiga við
Besti samherjinn? Marinó Óli
Sætasti sigurinn? hmm ekki úr mörgum leikjum að velja hehe... man sérstaklega eftir einum sigri á Þrótti á Austurlandsmóti á Eiðum 1998, þá réðst sigurinn á gullmarki í fyrsta og eina skipti mínu á knattspyrnuvellinum
Mestu vonbrigði? Tímabilin 2007/8 með KR voru mikil vonbrigði horft til leikmannamála helst
Uppáhaldsknattspyrnumaður? Alan Shearer
Besti íslenski knattspyrnumaðurinn fyrr og síðar? Ásgeir Sigurvinsson
Efnilegasti knattspyrnumaðurinn á Íslandi? Sara Björk Gunnarsdóttir
Grófasti leikmaður deildarinnar? Er ekki viss
Besti íþróttafréttamaðurinn? Gummi Ben er bestur, annars er ég alltaf hrifinn af Gaupa líka
Hver er mesti höstlerinn í liðinu? Fyrir utan mig (að sjálfsögðu) þá er það Kjartan Polo
Hefurðu skorað sjálfsmark? Já oft J
Spilar þú Championship Manager tölvuleikinn? Já
Hvenar byrjaðir þú að æfa fótbolta? Byrjaði 7 ára gamall á malarvellinum með Lúlla Vignis
Ef þú mættir breyta einni reglu í fótbolta, hverju myndir þú breyta? Ég myndi vilja fá skýrari reglur um peysutog, jafnvel færa það undir áminningar.
Hvern vildir þú sjá á sviði? (tónleikum) Queen á árunum 1982-1986
Hver er frægasta persónan sem þú ert með í farsímanum þínum? Petra Lind markvörður U19 ára landsliðsins 2005-2007
Hver er uppáhaldsstaðurinn þinn í öllum heiminum? Kaupmannahöfn er frábær staður fyrir utan þetta venjulega.
Hversu lengi ertu að koma þér í gang á morgnanna? Ekki nema 3 mín að vakna en 5-6 klst að koma mér í gang.
Hver er uppáhaldsÍÞRÓTTAMAÐURINN þinn? Enginn sérstakur
Hver er uppáhalds platan þín? The Game með Queen hefur alltaf verið í uppáhaldi
Hvenær borgaðir þú þig síðast inn á knattspyrnuleik? FH-Aston Villa í haust
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú? Adidas
Í hverju varstu lélegastur í skóla? Heimilisfræði
Hvað langar þér að taka þér fyrir hendur þegar að fótboltaferilinn er búinn? Ahh kvíði þeim tíma maður... Ætli maður endi ekki bara í einhverri 9-5 vinnu, what a way to make a livin J
Eithvað að lokum? Nostradaums sagði, stórveldið úr austri mun rísa á 21. Öld.
Hin Hliðin | 6.11.2008 | 00:02 (breytt 7.12.2008 kl. 22:55) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þá er komið að nýjum lið á síðunni en það er einmitt viðtal við leikmenn um daginn og veginn. Viðtölin geta verið tekin með ýmsum hætti en í þessu tilfelli var notast við sk. MSN spjallforrit frá Microsoft sem er víst nýjasta nýtt, en látum það flakka:
Kjartan Bragi says:
Já sæll og blessaður Lexi, hvað segiru gott í dag?
Alexander Freyr;* says:
ég er heeel nettur í dag þakka þér fyrir
Kjartan Bragi says:
það er ekkert annað!
hefuru verið eitthvað að sparka í bolta nýverið?
Alexander Freyr;* says:
herðu það er eitthvað voðalega lítið, ég hef mætt á 2 flokks æfingar KFF/Leiknis og meistaraflokks leiknis æfingarnar og síðan hef eg verið Duglegur að mæta í Alcoa boltann
Kjartan Bragi says:
já það er gott að vita að félagsmenn séu að hreyfa sig fyrir austan á þessum síðustu og verstu tímum
Alexander Freyr;* says:
segðu segðu
Kjartan Bragi says:
en hvernig lýst þér annars á ráðningu á nýjum þjálfara félagsins?
Alexander Freyr;* says:
Það leggst bara vel í mig, okkar síðasti þjálfari var ekkert mikið að standa sig í stykkinu og við skulum bara vona að þessi nýji standi sig vel og vinni nokkra titla með okkur strákunum
Kjartan Bragi says:
við þurfum alla vega að snúa gengi síðasta sumars við
Alexander Freyr;* says:
já mikið rétt
Kjartan Bragi says:
Hvað fannst þér klikka síðasta tímabil?
Alexander Freyr;* says:
ég held að mórallinn hefði mátt vera betri og ef leikmenn ( nefni engin nöfn ) hefðu verið 5. fallt duglegri að mæta í leiki og annað slíkt þá hefðum við tekið Dolluna heim!
Kjartan Bragi says:
já það er ekki nokkur spurning að með fullskipað lið hefðum við skilið hin liðin eftir í rykinu
Alexander Freyr;* says:
nákvæmlega
Kjartan Bragi says:
Eftir að Dýnamó Höfn sagði sig úr keppni síðasta sumar fengu sum hinna liðanna stig sem við þurftum að vinna fyrir með því að fara á Höfn, en þeim leikjum höfðu liðin frestað sjálf, hver er skoðun þín á þessu?
Alexander Freyr;* says:
mér persónulega finnst þetta bara ósanngjarnt, við vorum 1 af hvað 2 liðum sem fórum á höfn til þess að ná í stigin og unnum vel fyrir þeim með aðeins 11 leikmönnum!.. og við enduðum leikinn 9 og héldum út í 2-0 sigur! þannig að þetta finnst mér bara lélegt og finnst mér að leikirnir hefðu allir átt að fara eins og þeir fóru, nema kannski leikirnir sem áttu eftir að vera spilaðir. við náttúrulega töpuðum mest á þessu, vorum í bronsinu en enduðum á botninum
Kjartan Bragi says:
þú átt þá við að ekki hefði átt að gefa stig fyrir leiki sem lið frestuðu sjálf?
Alexander Freyr;* says:
já
Kjartan Bragi says:
en nóg um það, þetta skiptir víst engu máli lengur
Alexander Freyr;* says:
nei what is done is done eins og maður segir á góðri ensku
Kjartan Bragi says:
hvernig telurðu gengi okkar verði næsta tímabil?
Alexander Freyr;* says:
ég spái okkur góðu gengi næsta tímabil, við verðum í titilbáráttu næsta ár eins og seinast liðin 2 ár og í þetta skipti rænum við dollunni í loka umferðinni eins og FH gerði Keflavík
Kjartan Bragi says:
það væri unaðslegt
hvaða lið sérðu fyrir þér í toppbaráttunni með okkur?
Alexander Freyr;* says:
ætli það verði ekki bara þessi vanalegu, KR, BN, og mjög líklega UMFB. Þristurinn var að lofa góðu seinasta tímabil eftir stórsigur okkar á þeim og ég held að þeir eigi eftir að koma verulega á óvart næsta tímabil, svo vona ég bara að fleiri Lið skrái sig í keppnina svo það verði Fleiri leikir
Kjartan Bragi says:
það væri óskandi, keppnin þarf nauðsynlega á fleiri liðum að halda
Alexander Freyr;* says:
já, til að gera þetta meira spennandi og skemmtilegra fyrir Leikmenn og áhorfendur þótt þeir séu nú ekki margir alltaf
Kjartan Bragi says:
en það sem hefur verið að fara illa með deildina eru þessar eilífu frestanir á leikjum, sem ollu m.a. því að við vorum eina liðið sem spiliði alla leikina síðasta sumar, hvað væri hægt að gera til að koma í veg fyrir þetta?
Alexander Freyr;* says:
Sekta lið fyrir frestanir, eina sem til er inní myndinni
Kjartan Bragi says:
en hafa liðin úr einhverju fjármagni að spila?
Alexander Freyr;* says:
við skulum nú bara vona það, annas segi ég bara greygrey
Kjartan Bragi says:
en já lexi þetta er orðið gott í bili, ég þakka þér bara fyrir að sinni og gangi þér allt í haginn að breiða út hróður liðsins
Alexander Freyr;* says:
já þakka þér fyrir Sömuleiðis
Þá er fyrsta viðtalinu lokið, ég þakka lexa fyrir spjallið og vonandi verður þetta að vikulegum lið hér á síðunni
Fréttadeild félagsins þakkar fyrir sig
Íþróttir | 5.11.2008 | 23:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Knattspyrnufélag Reyðarfjarðar hefur ákveðið að ráða til liðsins nýjann þjálfara. Eftir slakann árangur síðustu 2ja ára þá var Konráð Þór Vilhjálmsson látinn taka pokann sinn. Í hans stað hefur verið ráðinn Þórður Vilberg Guðmundsson, hann er reynslu mikill úr yngriflokka starfinu en er að koma nýr inn í þjálfun meistaraflokks. Þórður er 22. ára gamall og er fyrrum super striker í liðinu, en hefur nú lagt skóna á hilluna og ákvað að taka að sér þjálfun félagsins eftir miklar og strangar viðræður. Önnur nöfn hafa komið upp á borðið hjá félaginu og hefur meðal annars annar ungur þjálfari sótt um starfið. Eftir langa og stranga umhugsun þá var Þórður fyrir valinu. Vonandi að hann komi til með að ná betri árangri en fyrirveri hans í þessu starfi. Við óskum Þórði alls hins besta í nýja starfinu og vonum að hann eigi eftir að ná langt.
Óli Formaður
Íþróttir | 30.10.2008 | 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Vegna skakkafalla í íslenska efnahagskerfinu þá gekk sala KR á Páli Jóhannessyni til dönsku snillinganna í Álaborg til baka. Danir neyta að leggja peninga inn á íslenska banka þannig að ekkert verður að sölunni. Hins vegar er kominn nýr leikmaður til liðsins og á sá leikmaður sennilega eftir að velta Kjartani Braga úr sessi sem söngvari liðsins. Hér er linkur með vídjói sem við hjá KR fengum sent af þessum nýja leikmanni og ofur skemmtikrafti http://www.youtube.com/watch?v=-sy3hLO6l94
Það er skemmst frá því að segja að starf félagsins liggur að mestu leyti niðri eins og staðan er núna. Utan þess sem við stjórnar menn höfum verið að ræða framtíð liðsins. Það sem helst er á dagskrá eru hugsanleg leikmannakaup fyrir næsta tímabil og ber þar helst að nefna hinn geysi sterka sóknarmann Hanlouga Gloungley frá Nígerakva. En þessi maður er tallinn eitt helsta efni landsins, einungis 47 ára gamall. Útsendari okkar í Danmörku, Páll Jóhannesson er að skoða úrval danskra leikmanna fyrir liðið og er von á skýrslu frá honum á næstu dögum eða vikum.
Aðalfundur félagsins verður haldinn þegar stjórnarmenn sjá fram á það að vera flest allir ef ekki allir á sama stað á sama tíma. En það verðu auglýst síðar.
Ég man ekki eftir neinu öðru í augnablikinu þannig að ég læt þetta gott heita í bili.
Skora á Kjartzenegger að fara að tjá sig hérna aftur, hann hefur hvort eð er ekkert annað að gera þarna í Reykjavíkinni en að blogga.........
Formaðurinn kveður að sinni........
Íþróttir | 27.10.2008 | 21:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
http://www.austurglugginn.is/index.php/20081024821/Landid/Ymislegt/Malarvinnslan_segir_upp_30_starfsmonnum
Eða sponsar seðlabankinn bara dæmið?
Íþróttir | 24.10.2008 | 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Jæja þá þykir kominn tími til að hamra eitthvað nýtt inná þessa blessuðu síðu. Einkennilegt er að segja frá því að lítið er að frétta af félaginu um þessar mundir enda leikmenn staddir útum allar trissur á landinu þennan veturinn og hópurinn þynnri fyrir austan en oft áður. Klár afleiðing af þessu er að eflaust verður lítið um bolta hjá okkur í vetur en það kemur þó varla að sök enda liðið aðeins skipað einvala mönnum í hverri stöðu.
Nokkrir mektarmenn í félaginu hafa verið að rotta sig saman undanfarið og ákveðið að halda lokahóf e-n tímann milli jóla og nýárs þegar allir eru heima, þessi atburður verður líklega svo stór í burðum að ekki duga minna en röskir 3 mánuðir í skipulagningu, kom þessi hugmynd fram (ásamt öðrum sem eflaust eiga ekki heima á ritformi) þegar fulltrúar liðsins voru í opinberri kynningarferð í Reyjkavík um helgina. Drög hafa verið lögð fram að deiliskipulagi kvöldsins og mun það fela í sér að taka æfingaleik við eitthvað lið og rústa því og svo gleðskap af ýmsu tagi um kvöldið og endað í heimspekilegum umræðum um tilgang lífsins, tilviljanir og heimsendi. Til að undirbúa þetta betur mun allsherjarnefnd féglagsins líklega kíkja á lítið lokahóf í Reykjavíkurborg í Októbermánuði verði niðurstaða matsnefndar að sá viðburður teljist nógu merkur til að ræsa út allsherjarnefnd.
Af öðru þá ber helst að ræða um þreyfingar á leikmannamarkaði og ber það helst að frétta stórsala á Óla rauða til Æskunnar á Svalbarðsströnd. Norðanmenn fengu Kanínuna síspræku með loforði um oddvitastól Svalbarðsstrandarhrepps á næsta kjörtímabili og verður ánægjuilegt að fylgjast með því.
Pál Jóhannesson var lánaður til Aab í Álaborg, þó með því skilyrði að hann mætti ekki undir nokkrum kringumstæðum spila með þeim í meistaradeildinni enda gæti það haft áhrif á þáttöku hans með Veldinu í evrópukeppninni á næsta tímabili, ef við komumst þangað. Aab vildi ekki samþykkja þessa málamiðlun fyrst um sinn en eftir að dregið var í riðla var ljóst að hægt yrði að hvíla lykilmennina í þeim leikjum.
Fleira hefur ekki enn gerst í þeim efnum en reyndar bauð eitthvurt breskt félag, Liverpool FC eða eitthvað álíka, nokkrar kúlur í Atla Má Sigmarsson, leikmaðurinn hafnaði þó vistaskiptunum og sagði ekki í myndinni að hann myndi spila fyrir þann klúbb.
Það verður ekki meira í bili, næsta færsla kemur þegar jörð, sól og máni verða öll í beinni í línu og ritandinn hellist yfir mig
Þetta hefur verið Kjartan Bragi Valgeirsson sem valið hefur orðin af stakri snilld í þágu þessa pistils.
Íþróttir | 22.9.2008 | 00:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Færsluflokkar
Tenglar
Boltinn
- Gamla síðan !!!!
- KFF Fjabbarnir
- Leiknir F Leiknir International
- Utandeildin Malarvinnsludollan!!!
- Dýnamo Höfn Sovéski björninn
- 06.Apríl Seyðfirðingarnir
- http://
Um liðið
- Stjórnin Stjórn Félagsins
Bloggvinir
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar